Markmið:
Hlustun, viðbrögð, hreyfing, snerpa, athyglisgáfa, skemmtun.
Aldursmörk:
Frá 4 ára
Gögn:
Bolti, poki með fatnaði, tónlist.
Leiklýsing:
Leikurinn felst í því að nemendur sitja í hring á gólfinu. Kennari leikur tónlist og á meðan láta nemendur bolta ganga á milli sín (alltaf sama hringinn). Án fyrirvara stöðvar kennarinn tónlistina og nemandinn sem þá er með boltann þarf að draga flík upp úr pokanum og klæða sig í hana. Leiknum er lokið þegar pokinn er tæmdur og sá sigrar klæðst hefur fæstum flíkum.
Útfærsla:
Afbrigði af þessum leik nefnist Kústadans. Þá standa nemendur í hring, hreyfa sig í takt við tónlistina og láta kúst ganga á milli sín.
Í stað þess að láta nemendur klæða sig í flík er einnig hægt að láta þann vera úr leik sem heldur á bolta eða kústi þegar tónlistin hættir. Þá verða alltaf færri og færri eftir og leikurinn getur orðið meira spennandi.
Heimild:
Leikur númer: 82
Sendandi: Lára Eymundsdóttir

