Markmið:
Æfing í snerpu, þoli og athygli. Einnig hópstyrking.
Hafa gaman
Aldursmörk:
Frá 3 ára
Gögn:
Engin.
Leiklýsing:
Stór hópur krakka stendur saman í hring og þau haldast í hendur. Einn er hann og stendur hann/hún fyrir utan hringinn og slær í bakið á einhverjum sem er í hringnum. Báðir aðilar þurfa þá að hlaupa einn hring í kringum hópinn, en hlaupa í sitthvora áttina og reyna að ná í skarðið sem skilið var eftir í hringnum á undan hinum aðilanum. Sá sem nær fyrstur að komast í skarðið snýr sér þá út úr hringnum og ekki er hægt að „klukka“ hann aftur.
Leikurinn endar þegar allir hafa snúð sér við í hringnum.
Útfærsla:
Góða lýsingu og myndskeið sem sýnir leikinn er að finna hér: Hlaupa í skarðið – Funfy
Heimild:
Leikur númer: 431
Sendandi: Kristín Freyja

