Vessela Dukova leikskólastjóri heldur úti leikjavef fyrir börn á leikskólaaldri. Vefinn nefnir hún Leikið með sjálfbærni og er hann að finna á þessari slóð: https://www.leikidmedsjalfbaerni.com/
Leikjunum er skipti i fjóra flokka: Fyrsti flokkurinn felur í sér leiki sem snúast um það að læra til að öðlast þekkingu. Annar flokkurinn felur í sér leiki sem snúast um það að læra til að öðlast færni. Þriðji flokkur felur í sér leiki sem snúast um það að læra að vera. Fjórði flokkurinn felur í sér leiki sem snúast um að læra að lifa í sátt og samlyndi við aðra.
IS – 19. desember 2024

